*Í hvert sinn, sem þér gangið inn í ráðstefnuherbergið, hafið yfir þessa bæn með hjarta, sem slær af ást til Guðs, og tungu, sem er hrein af öllu nema minningu Hans, til þess að Hinn almáttugi megi náðarsamlega aðstoða yður við að vinna æðstan sigur:
Ó Guð, Guð minn! Við erum þjónar Þínir, sem höfum leitað í tilbeiðslu til heilagrar ásjónu Þinnar og höfum sagt skilið við allt nema Þig á þessum dýrlega degi. Við erum samankomin í þessu andlega ráði, sameinuð í hugsunum og skoðunum, með samstillt markmið að upphefja orð Þitt meðal mannkynsins. Ó Drottinn, Guð okkar! Ger okkur að táknum guðdómlegrar handleiðslu Þinnar, gunnfána upphafinnar trúar Þinnar meðal manna, þjóna Þíns máttuga sáttmála. Ó Þú, æðstur Drottinn okkar! Ger okkur að opinberun guðdómlegrar einingar Þinnar í ríki dýrðar Þinnar og blikandi stjörnur, sem skína víða vegu. Drottinn! Hjálpa okkur að verða höf, ólgandi af bylgjum Þinnar undursamlegu náðar, fljót sem streyma frá aldýrlegum hæðum Þínum, ágæta ávexti á tré Þíns himneska málstaðar, tré, sem bærast í andvara örlætis Þíns í himneskum víngarði Þínum. Ó Guð! Ger sálir okkar háðar ritningarversum guðlegrar einingar Þinnar, hjörtu okkar fagnandi með úthellingu náðar Þinnar, til þess að við getum sameinast líkt og öldur eins sjávar og runnið saman eins og geislar glampandi ljóss Þíns; að hugsanir okkar, skoðanir og tilfinningar megi verða sem einn veruleiki, sem birtir anda sameiningar um víða veröld.
Þú ert hinn miskunnsami og gjafmildi, veitandinn, hinn almáttugi og náðugi, hinn vorkunnláti.
-`Abdu'l-Bahá*Komið saman í flekklausri gleði og farið með þessa bæn í byrjun fundarins:
Ó Þú Drottinn ríkisins! Þótt líkamar okkar séu hér samankomnir, eru hugfangin hjörtu okkar samt bergnumin af ást Þinni og við heillumst af geislum skínandi ásýndar Þinnar. Þótt við séum veikburða, bíðum við opinberunar máttar Þíns og valds. Þótt við séum snauð, févana og án tækifæra, fáum við auð úr fjárhirslum ríkis Þíns. Þótt við séum dropar, komum við úr hafdjúpum Þínum. Þótt við séum sem mölflugur, ljómum við í dýrð geislandi sólar Þinnar.
Ó Þú forsjá okkar! Send niður aðstoð Þína, svo að sérhver sem hér er staddur megi verða sem lýsandi kerti, allir miðdeplar aðlöðunar, hver og einn kallari Þinna himnesku ríkja uns við að lokum gerum þessa lægri veröld að spegilmynd paradísar Þinnar.
-`Abdu'l-BaháÓ Guð! Ó Guð! Lít okkur frá ósýnilegu ríki eindar Þinnar samankomin á þessum andlega fundi í trú á Þig, fullviss um tákn Þín, staðföst í sáttmála Þínum og erfðaskrá, löðumst að Þér, upptendrumst af eldi ástar Þinnar og einlæg í málstað Þínum. Við erum þjónar í víngarði Þínum, útbreiðendur trúar Þinnar, helgaðir tilbiðjendur ásýndar Þinnar, auðmjúkir gagnvart Þínum elskuðu, undirgefnir frammi fyrir dyrum Þínum, sárbænum Þig um að staðfesta okkur í að þjóna Þínum útvöldu, styðja okkur með Þínum ósýnilegu herskörum, styrkja lendar okkar í þjónustu við Þig og gera okkur undirgefna og tilbiðjandi þegna, sem samneyta Þér.
Ó Drottinn okkar! Við erum veikburða, og Þú ert hinn máttugi og voldugi. Við erum líflaus og Þú ert hinn mikli, lífgefandi andi. Við erum þurfandi, og Þú ert sá sem viðheldur, hinn voldugi.
Ó Drottinn okkar! Bein augum okkar að miskunnsamri ásýnd Þinni, gef okkur fæðu af himnesku matborði Þínu af ríkulegri náð Þinni, aðstoða okkur með herskörum Þinna æðstu engla og staðfest okkur með fulltingi hinna heilögu í ríki dýrðarinnar.
Sannlega ert Þú hinn örláti og miskunnsami. Þú ert eigandi mikillar hylli og Þú ert sannlega hinn mildi og náðugi.
-`Abdu'l-Bahá